Núna er komið páskafrí. Tími til að troða í sig súkkulaðieggi og nammi... eða þannig, svo er þetta nú ekki mikið páskafrí... stefnir allt í að maður mæti uppí skóla allt páskafríið! Megastuð! Ójé!!
En svo við snúum okkur að mikilvægari málefni. Ég er enn að deyja mig langar svo að skoða gosið. En fólk virðist ekkert yfir sig spennt í að skoða það. Ætli það endi ekki með að ég fari einn. Haha, svo var ég að segja pabba (Hr. Friðberg) frá því að ég ætlaði að reyna labba upp að gosinu og hann talaði nú bara um eins og ég ætti eftir að detta ofan í rennandi hraunið :D ég ætla helst ekki að stinga mig ofan í hraunið, nema það verði fáranlega kalt... þá tekur maður kannski eina skrúfu eða bombu.
Ég hef nú ekki mikið að segja í dag, en ég ætla að enda á því að setja tengla og segja aðeins frá tveimur fáranlegum greinum sem ég las í dag og eflaust nokkrir hafa séð.
- RapeLay - Já, RapeLay er klárlega í 1. sæti yfir ógeðslegustu tölvuleikjum sem hafa verið gerðir. Þessi leikur gengur bókstaflega út á það að nauðga konum. Þetta er fokkin ógeð! 1. persónu nauðgunarleikur! WTF!! Þessir Japanir eru eitthvað þroskaheftir í andlitinu!!!
- Eins árs og preggó. Já, þetta er fáranlega freaky. Það var verið að uppgötva eins árs krakka sem fæddist með fóstur inní sér. Veit ekki með ykkur, en mér finnst dáldið snemmt að vera preggó þegar maður er eins árs. Súrt að alast upp samsíða barninu sínu... hahaha! Ég efast nú samt um að fóstrið lifi af.
En jæja. Ég ætla að enda blogginu á að vera fáranlega frumlegur og koma með lag dagsins. Þetta er tussu gott lag með söngkonunni Feist.
Kv. Atli F
Langar svakalega líka upp á gosið en ég ætla ekki að vera einsog vitleysingarnir sem festast uppi á strigaskónnum ! hah
ReplyDeletehahaha...án djóks, fokkin hálfvitar.
ReplyDelete